Til hamingju Sjálfstæðisfólk

 

Við megum vera stolt af okkar fólki. Flokkurinn styrkist um 3 á landsvísu sem er skrambi gott eftir þetta langa stjórnarsetu.

Það er umhugsunarefni hvað er að gerast með Framsóknarflokkinn.  Samkvæmt þessu hefur hann fengið mjög rækilega áminningu um sín störf og tel ég að formannsskipti á tímabilinu hafi eitthvað að segja um vægast slakt gengi hans. Flokkurinn þarf að hugsa taktikina upp á nýtt og skoða hvað fór úrskeiðis í þéttbýlinu.

 Ég tel að fyrsti kostur sé að halda óbreyttu stjórnarmunstri og líst illa á R lista hópinn. Það vita allir hvernig það endaði í borginni. 2 flokkar i stjórn hefur gefist best hér á litla Íslandi. D og V yrði einsdæmi í sögunni enda flokkarnir á sitthvorum enda litrófs stjórnmálana og ég tek ekki fýsilegan kost. Geir og Jón landa þessu í vikunni.

 

 


Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband